|
|
11.04.2007 08:34:46 / Steinunn
Sögustund
auk almennra
hugleiðinga-
Páskafrísbyrjun.
Ánægjan yfir því að vera komin í páskafrí
gagntók mig algjörlega við lok skóladagsins á föstudaginn, og
fylgdi hún mér fram undir morgun laugardags. Ég brá mér í afmæli
það kvöldið og sökum þessarar verulegu gleðivímu auk dulítillar
áfengisvímu lifir kvöldstund þessi mér í minni umlukt fjólublárri
þoku. Ég er ekki frá því að ég hafi talað meiri frönsku en íslensku
þetta kvöldið, en veit ég þó ekki hvernig það getur staðist þar sem
franskur orðaforði minn er nú ekki uppá marga fiskana. Einnig
finnst mér endilega einsog ég hafi meira setið á
gólfinu en nokkurn tímann á stól, og allt þetta af einskærri ánægju
yfir komu hins ljúfa páskafrís. Eitthvað má þó örlítið hressa uppá
minni mitt því er ég vaknaði á laugardagsmorguninn (hress nota
bene!) var ég öll í marblettum! Á vinstra lærinu og á báður
brjóstunum má sjá nokkuð sem gætu bara vel verið merki um
hnefahögg, en sama hvað ég hugsa stíft þá get ég ekki munað til
þess að ég hafi lent í nokkrum barsmíðum. Svo ég hef bara við engan
að sakast, kannski rakst ég bara á
eitthvað.
Ferming.
Haldið þið ekki bara að hann litli drengurinn
minn hafi ekki staðfest skírn sína með því að játa trúna fyrir
framan Guði og mönnum þann 1. apríl, síðastliðinn. Það var ljómandi
hátíðleg athöfn í alla staði. Strax að henni lokinni var haldið til
veislu sem var svona líka ægilega
skemmtileg. En jæja,
við þennan merka áfanga litla bróður míns fór ég að pæla,
einsog jú svo oft áður; Þar sem hann Gæi sat við eldhúsborðið
í gærkvöldi og opnaði hvert peningaumslagið á fætur öðru (sem
hann fékk að gjöf frá veislugestum, þið skiljið), með
dollaramerki í augunum, kom í ljós að verðbólgan hefur sitt
að segja með fermingargjafir á öldinni okkar. Það eru
nefnilega ekki nema fjögur ár síðan ég gekk sjálf í gegnum
þessa hátíðlegu vígslu þar sem barn er tekið í fullorinna
manna tal og þá var einmitt haldin sambærileg veisla, meira
að segja í sama sal og að lokinni athöfn í sömu kirkju og
gott ef ekki bara að mestu leiti nákvæmlega sama fólkið, þá
fékk ég rúmlega helmingi minni pening að gjöf heldur en
Garðar, ekki nema fjórum árum seinna. Það var
þá sem ég fór að pæla fyrir alvöru! Það er semsagt
nokkuð ljóst að á fermingu sinni fá krakkar alveg ógrinni af
peningum! Fjórtán ára börn hafa ekkert við allan þennan
pening að gera!!! Það er nær að krakkar á aldur við mig,
sem alltaf eru blankir, taki uppá því að fermast til að fá
þessa peninga!
Jájá, góð pæling útaf fyrir
sig.
Sukk.
En fyrst maður er nú
loksins kominn í þetta langþráða páskafrí, stefnir allt í
óheilsusamlegt líferni hér á bæ. Ef ég þekki mig rétt (sem ég ætti
nú að gera þar sem ég er nú einu sinni ég) þá
ætti mér fljótlega að vera búið að takast að snúa því þannig að
fótaferðatími færist til klukkan að ganga þrjú og þar af leiðandi
háttatími á bilinu 2 – 5 á nóttunni. Kók í morgun mat, hádegismat
og kvöldverð, og allt fram eftir
götunum.
Þessi langa færstla var uppbót fyrir algert bloggleysi hér á
síðunni undanfarin
misseri.
Ykkar
einlæg
Steinunn Anna Hannesdóttir
»
30.01.2007 21:05:15 / Steinunn
Ég skal fúslega viðurkenna það; ég felldi tár!!
!"#/#&#"(/%&("=#)($)=(t%=#ö"!#(!#!"#$#$%&/()#)=($(!="!#ö=)"!ö=#)"!ö=#)ö="!)#ö="!)$=Ö#"
DJÖFULSINS SVEKKELSI="!)(#""$&="ö#=)("!/#=!

ást á þessum mikla manni!
»
24.12.2006 06:06:41 / Steinunn
Jæja. Þá er þetta allt saman að
smella. Nú ligg ég hér andvaka, dagatalið sýnir 24. desember,
jólaregnið slær gluggann og ég er með einn af hinum mörg
þúsund jólasmellna sem Helga Möller hefur gefið út, á
heilanum. Þetta er tilfinning sem er kunnugleg og þá kannski
sérstaklega það að hlusta á jólaregnið, þar sem ég er ekki
frá því að það hafi ekki snjóað á þessum tíma árs síðan amma
var að vinna í því að táldraga afa, og það er sko orðið
þónokkuð langt síðan. Ég er lúmskt farin að hallast að því að
það þurfi að fara að róta eitthvað til þessari hefðbundnu
jólahugmynd um hvít jól, það fyrirbæri er orðið álíka
sjaldséð og rauðklæddur farþegi fljúgandi sleða, dreginn
áfram af hreindýrum. Ef rétt er haldið á spöðunum þá ætti
ekki að vera svo langt í að íslenskum börnum finnist ekkert
hátíðlegra en það þegar að rignir á jólaljósin og sungnir eru
söngvar um jólakort og jólasvein og jólaregn, í stað
jólasnjósins.
,,Jólaregnið fellur niður, yfir
stræti og torg....”
Annað sem er allnokkuð
kunnuglegt er andvakan. Síðan ég man eftir mér hef ég legið
vakandi fram undir morgun á aðfangadag. Spenningurinn í
lítilli sál og líkama olli því að erfitt var að halda augunum
lokuðum og gefa færi á því að svífa inn í draumalandið. Í
kvöld er ég vissulega spennt, jújú, en það sem raunverulega
veldur vöku minni er nú bara það að af góðum jólafríssið
hefur mér, fyrir nokkru, tekist að snúa sólarhringnum í
þennan líka snyrtilega hálfhring.
En sannast sagna væri ég nú að
fara með rangmæli ef ég segðist vera komin í eitthvert
hátíðarskap. En vil ég segja ykkur það að það virðist sem það
sé nú bara nokkuð almennt vandamál. Ætli ekki séu einhvers
staðar vitleysingar sem selja þannig bara í lausasölu, og
borða hugsanlega appelsínu á pizzu?
Þrettándi var
kertasníkir,
Þá var tíðin köld,
Ef ekki kom hann
síðastur
Á
afangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin
Sem brostu glöð og fín
Og trítluðu um bæinn
Með tólgarkertin sín.
Partur úr ljóði eftir félaga minn, Jóhannes úr Kötlum
Góðar stundir
steinunnanna
»
08.12.2006 15:01:26 / Steinunn
Alltaf soldið gott þegar maður finnur
eitthvað svona, svo að maður þurfi ekki að blogga sjálfur
8-)
1. miðnafnið mitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?
»
23.11.2006 15:25:12 / Steinunn
Það var á
því herrans ári 1989 að hjónakornunum Jóni og Önnu Maríu á
Berghyl fæddist þeirra fjórð barn og önnur dóttir. Það var
eftirtektarvert um leið og stúlkubarnið leit dagsins ljós
hversi fögur hún var. Bros hennar lýsti upp allt í kringum
sig og augu hennar fylltu mann í senn æsingi og ró. Barnið
fékk nafnið Brynhildur.
Hún ólst upp í sveitasælunni í
Hrunamannahreppnum, hoppandi og skoppandi á eftir kúm, ám og
hestum, heldur betur sátt við lífið.
Á sjötta aldursári sínu hóf hún
skólagöngu í barnaskólanum á Flúðum, eignaðist hún marga ágæta vini
um leið og hún tæklaði námið af mikilli snilli öll árin sín þar
tíu. Henni Brynhildi er sko margt til lista lagt en hæst ber þar að
nefna afgerandi hæfni í körfuknattleik, en auk þess hefur allnokkuð
borið á óviðjafnanlegum söng, dans, drykkju og teiknohæfileikum
hennar.
Mikið fannst Brynhildi gaman að lifa
þegar hún hafði loksins aldur til að byrja í Fsu! Þá gat hún sko
mikið skemmt sér, en þó aldrei á kosnað námsárangurs. En mest og
best var þó þegar hún kynntist henni Steinunni Önnu vinkonu sinni,
því þær hafa nú þegar og stefna einnig að því að upplifa margt
saman, til dæmis fóru þær saman á Landsmót Hestamanna sumarið 2006.
MEST GAMAN!
Jóhóhó, haldiði ekki að Brynhildur
hafi svo fengið bílpróf í gær! Og þá átti hún líka sautján ára
afmæli.
Já, Binna mín. Þetta er í raun bara
seinbúin afmæliskveðja til þín. Til lukku með árin öll sautján og
langþráð ökuréttindin, sé þig á rúntinum sæta mín ;*;*;*
-þín vinkona Steinunn Anna

»
04.10.2006 21:56:17 / Steinunn
Tilfinnigar!
Mynda þær alltaf bara flækju/r???
»
20.09.2006 21:01:34 / Steinunn
Alltaf skal ég blogga um
réttahelgina.
Segja má að hún hafi gengið í garð á
fimmtudagskvöldið. Mín elskaða Fjóla Dögg stóð fyrir kengilmagnaðri
kvöldvöku, en ég missti af henni af stærstum hluta til, því er nú
ver og miður. Ég fékk eitt stykki stærðarinnar sjónvarp og svo á
miðnætti fékk ég bílpróf. Kíkti örstutt á rúntinn með ungum pjátum,
Hrafnhildi, Bryndísi og Önnu Rut, en passaði mig að skila mér ekki
seint heim þar sem ég þurfti að vakna eldsnemma í afmælisveislu sem
ég vissi að myndi bíða
mín morguninn eftir.
Ég keyrði í skólann með fullan bíl af
fólki og fékk ótrúlega mikið af vel þegnum sms-um og símhringingum,
og vil ég þakka öllu því vinsamlega fólki sem mundi daginn og
óskaði mér til lukku með hann, ástsamlega fyrir. Ég fór beint til
vinnu eftir skóla, en slapp þaðan nokkuð snemma þar sem til stóð að
fara í fertugsafmæli til nöfnu minnar, Önnu Bjargar. Þegar búið var
að taka nett brjálæðiskast vegna hæfileikaleysis til að velja föt
til að klæðast náði ég í hann Stefán Ármann og héldum við til
veislu. Þetta var hið fínasta teiti og þaðan var keyrt á nýfengnu
bílprófi í Hrunamannahreppinn á hinn margrómaða Útlaga, ásamt
Stefáni og Sigurjóni. Þar var mjög margt fólk, mikil gleði en
alltof lítið pláss til dans eða annarra athafna, vegna of mikils
fjölda manns miðað við húsastærð. Undir morgun var svo haldið á
Selfoss.
Laugardagurinn var tekinn snemma í
þetta sinnið því höfðum við, fyrrnefndur Stefán Ármann, tekið þá
ákvörðun að fara í réttir í Biskupstungunum, og þær byrjuðu vel
fyrir hádegi. Réttir þessar voru án nokkurs vafa hápunktur
helgarinnar, stórgaman að ráfa um með fullum formönnum nemendaráðs
og íþróttaráðs. Ótrúlega skemmtilegt. Þegar þegin hafði verið
dýrindis kjötsúpa að Vatnsleysu dróg ég Stefán með mér niður á
Selfoss því þar áttum við að mæta í vinnu klukkan sex. Svo var ég
með mömmu, pabba og Sigrúnu Örnu á réttarballi í Aratungu um
kvöldið, það var skemmtilegt.
Sunnudagurinn fór í það að sofa út
svo fór ég til vinnu og um kvöldið fór ég svo í mjög fallega
bænastund í Hrunakirkju, þar sem beðið var fyrir honum Bersteini
mínum. Mikið er ég samt vonlaus, græt ég alltaf bara meira en
allir? Meira að segja meira en nánustu aðstandendur? Jæja, lítið
við því að gera, ekki get ég að því gert að ég sé viðkvæm, eða
hvað?
En helgin er búin og þar af leiðandi
bloggið líklegast líka.
Baráttukveðjur til þín Bergsteinn
minn, þú ert efstur í huga mér nú um þessar mundir :*:*
-Steinunn Anna, 17 ára..
»
14.09.2006 19:10:44 / Steinunn
Það varð bílslys í nótt. Ungur ökumaður velti bifreið sinni rétt
við heimili sitt, hann var ekki í öryggisbelti og flaug út um
framrúðu bíls síns sem hann keyrði. Hann er höfuðkúpubrotinn og
gekkst undir aðgerð í morgun. Það var ástkær vinur minn, Bergsteinn
Björn, sem varð fyrir þessum hræðilega atburð. Þetta er bara of
ótrúlegt til að maður geri sér almennilega grein fyrir þessu. Þú
ert svo mikill kjáni, Bergsteinn! Ég var að segja það við þig bara
um daginn að þú átt að vera í bílbelti. Svo sefurðu bara af þér
allan afmælisdaginn minn, sem þú varst búin að lofa að muna eftir
og óska mér til hamingju með. Úff hvað lífið er ósanngjarnt, og það
er sárt að þetta hafi þurft að vera þín kenning til að læra að
keyra eftir aðstæðum og vera með bílbelti. Megi englar Guðs vera
með þér og veita þér styrk í baráttu þinni, sem ég veit að þú munt
sigra. Hugur minn er allur hjá þér, elsku hjartans vinur.
Að öðru. Ég háði bílprófið í dag. Það fór bara nokkuð vel, og
býst ég sterklega við því að vera komin útá götur Selfossbæjar að
miðnætti í kvöld. Svo hafið varann á! Sorgarfréttirnar sem bárust í
morgun skyggja óneitanlega mikið á afmælisdaginn og bílprófið sem
maður er þó búinn að hlakka svo mikið til, en um er að gera að vera
sterkur og bjartsýnn. Nú get ég keyrt til Reykjavíkur að hitta
Bergstein minn.
Lífið er ekki sanngjarnt.
Steinunn Anna
»
31.08.2006 22:24:39 / Steinunn
°Arna Lára er farin til Frakklands
°Það er soldið sorglegt
°Kókið er alltaf jafn gott
°Ég verð alltaf meiri og meiri tossi með hverri önn
°Busunin er á morgun
°Einnig busaballið
°Ég náði bóklega, soldið mikill léttir
°Ég er með “soldið” soldið mikið á heilanum
°Ég á enga peninga orðið, en það er útborgun á morgun
°Soldið gott það
°Kókið er búið
°Soldið slæmt
°Ég nenni ekki að blogga
Góða nótt :*
Steinunn Anna

»
13.08.2006 23:00:27 / Steinunn
Verslunarmannahelgin kom og áður
en við var litið var hún farin aftur. Hún tók eitt mannslíf
þetta árið, í umferðinni er aldrei of varlega farið.
Í tilefni frídags verslunarmanna
þetta árið voru þeir ófáir sem lögðu land undir fót og flugu til
útlanda. Einhverjum hef ég heyrt af sem stungu af alla leið í
sólina á Mallorka, hópur drengja neðan af strönd fóru til Danmerkur
og eflaust hafa margir aðrir farið eitthvert annað, eða jafnvel á
sömu staði. Enn fleiri voru þeir sem fóru á hina árlegu þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum, en skilst mér að flestir hafi þó lagt leið sína til
Akureyrar. Ég persónulega var að vinna, líkt og í fyrra. Á
föstudeginum losnaði ég samt snemma og fór ásamt tveimur elskulegum
stúlkum sem ég vinna með til Reykjavíkur, verslaði mér kjól, át
yfir mig á pizza hut og ældi pizzunni næstum í tívolíinu. Svo fór
ég á Selfoss og lærði, svaf, lærði, fór uppí bústað til mömmu og
pabba að djamma með þeim og vinum þeirra, svo aftur á laugarvatn og
vann og vann og vann. Hápunktur helgarinnar var klárlega rétt fyrir
klukkan átta á sunnudagskvöldið þegar Brenda og Dylan hættu saman.
Þannig var það nú og það er nokkuð ljóst að ég ætla ALDREI aftur að
vinna um verslunarmannahelgina.
En jæja.
Það lítur út fyrir að sumarið sé að
renna sitt skeið, mér til mikillar gleði. Ekki það að mér þyki
neitt leiðinlegt við sumrið; veðrið kemur mér ávallt í gott skap,
ég hef gaman að vinnunni minni og umgengst skemmtilegt fólk yfir
sumartímann. En samt er ég orðin alveg ótrúlega spennt. En ég var
samt í fríi í dag. Sá frídagur hefur nú nýst frekar illa, þar sem
ég náði að sofa til klukkan hálf fimm. Ástæða þess var nú þó fyrst
og fremst sú að ég fór ekki að sofa fyrr en klukkan hálf sex í
morgun vegna þess að ég tók mig til skellti mér á þennan líka
ljómandi skemmtilega dansleik, þar sem Stuðmenn spiluðu fyrir
dansi. Fátt um þá skemmtun að segja nema hvað að það var alveg
stórgaman. Í kvöld átti ég svo eina af hinum stórskemmtilegu
kvöldstundum með foreldrum mínum þar sem einu umræðuefnin eru það
að ég þurfi að djamma minna, læra meira, hafa meiri reglu á
svefninu, einbeita mér meira að akstrinum og keyra hægar.
Áhugavert..
Ahh.. þetta blogg er komið út í að
vera ekki um neitt svo ég ætla að skella inn niðurtalningunum
mínum
Í dag eru:
# 33 dagar í að ég verði sautján ára

# 9 dagar í skólann
# 4 dagar í að ég fari til
útlanda
# 3 dagar í að Anna Rut komi heim
(vildi óska að það væru – 3 frekar!)
# 133 dagar í jólin (já, ég á afmæli
akkúrat 100 dögum fyrir jól)
# 19 dagar í útborgun
En já, takk fyrir í kvöld
-SteinunnAnna

ég og Lena, eins á litin...
»
28.07.2006 17:39:58 / Steinunn
Tíminn líður,
tölurnar lækka og viti menn, einungis eru nú 49 dagar í
sautjánda afmælisdainn minn. Ég finn það hvernig barnið innra
með mér fjarar út með hverjum deginum sem líður. Það hefur
reyndar ekki truflað mig neitt alvarlega fyrr en í dag þegar ég
sat inná kaffistofu og leysti sudokuþraut annars hugar, leit
útum gluggann, hryllti mig og hugsaði ,,Brr, mikið andskoti er
stutt í jólin” hvað er það? Það þýðir, fjandinn hafi það, að ég
sé orðin gömul! Hvað varð um þá tíð þegar ég horfði útí
rigninguna í lok júlí og hugsaði ,,djíís hvað það er langt
þangað til að ég á afmæli”. Hver man ekki eftir því þegar það
var endalaust langt í jólin í október? Já, eða bara þegar jólin
voru hátíð ljóss og friðar en ekki stress og pirrings. Hvað er
að verða um Ísland? Til dæmis ef ég hugsa til 17. júní. Þegar ég
var lítil var ALLTAF rigning á 17. júní en maður hlakkaði samt
alltaf til þessa dags, nú nýtir maður frídaginn í það að sofa
út, og svo um það sé rætt, alla frídaga sem gefast. Röfl.
Til hamingju með
afmælið Birna Björt!
-Steinunn
vonda...
»
19.07.2006 01:31:51 / Steinunn
Anna Rut
c
says:
fulli gaurinn?
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
glaetan spaetqan
Anna Rut
c
says:
hehehe
Anna Rut
c
says:
það er nú gott
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
jaman
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
eg er samt orugglega med
teim fullustu nuna
Anna Rut
c
says:
kemur á óvart
Anna Rut
c
says:
Steinka biður að
heilsa
Anna Rut
c
says:
og knúsaðu Fannar frá
okkur!!
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
anana steinnunnn
elskan
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
hann for
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
hann er alltaf of
fullur
Anna Rut
c
says:
fór hann heim?
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
nei ut
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
tessvegna sefur hann
mest
Anna Rut
c
says:
okey meinar hehe..
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
hcad er ad gerast naestu
helgi a slefisso
Anna Rut
c
says:
ekki neitt eins og
venjulega
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
uss
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
mer langar a salar
ball
Anna Rut
c
says:
finndu þá sálar
ball
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
tu att ad finan
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
eg skil ekki nogu vel
bulgoveskur
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
en eg er ad fara sofa allveg
ad drepast
Anna Rut
c
says:
talaðu bara ensku við þá ,þú
ert svo góður í því!
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
jeje
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
blöala
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
bklsla
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
gn
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
i love slep
Anna Rut
c
says:
hahaha
Anna Rut
c
says:
farðu að sofa elskan
okkar
Ingvar - gruppan.tk - bulgaria
says:
eg se ykur a
isladn
Anna Rut
c
says:
já hvenar komiði?
homma sofa says:
a fimtudagin kl 6 a uskandiu
held eg
homma sofa says:
en gn
homma sofa says:
islandi
homma sofa says:
ble
Kv. Steinunn Anna og Anna Rut 
»
11.07.2006 02:59:18 / Steinunn
Ég bloggaði hellingslangt blogg um það hvað ég hefði ekkert að
blogga um, komst svo að því að það var leiðinlegt svo ég strokaði
það út.
Fyrir rétt rúmri viku síðan var prinsessuvagninn minn,
stórglæsilegi, fylltur af stúlkum og þeim brunað alla leið norður í
Skagafjörð. Já, fjarlægðin gerir fjöllin blá og svo sannarlega
langt í Skagafjörðinn, en Landsmót Hestamanna var klárlega margra
tíma keyrslu virði. Þess má þó geta að ég sá ekki eina einustu
keppni á meðan á dvöl minni stóð þarna, og skammast ég mín
óneitanlega fyrir það. En sé ég ekki mikla ástæðu til að vera að
þrefa meira um það, Landsmótið var hreint út sagt frábær skemmtun,
þangað ætla ég aftur að tveimur árum liðnum og hana nú.
Á fimmtudaginn síðasta var förinni heitið til höfuðstaðarins.
Þar hafði ég mælt mér mót við nokkrar ungar stúlkuhnátur og var
plönum þannig háttað að ætluðum við að skella okkur í
Borgarleikhúsið og sjá þá margrómuðu sýningu Footloose. Sú sýning
var bara alveg ágæt, ekkert meira en það. Það merkilegasta og
eftirminnilegasta við þessa leikhús ferð, að mínu mati, er þó það
að á föstudeginum hrökk ég upp af værum blundi, á heimili mínu á
Selfossi og gerði mér ljóst að ég hafði sofið yfir mig og átti ég
að vera mætt fyrir hálftíma síðan í vinnu á Laugarvatni, það sem
merkilegt nokk þykir við þetta uppátæki er það að mæting var
klukkan þrjú um miðjan dag og hafði mér, Steinunni Önnu, hreinlega
tekist að sofa yfir mig til hálf fjögur. úff, ég held ég kóróni
flest...
Lítið drífur á daga mína núna. Ég mæti bara í vinnu og tel þess
á milli dagana í það að Birna komi heim (19 dagar), í útborgun (21
dagur), í það að ég verði sautján (66 dagar) og í það að skólinn
byrji aftur (42 dagar).
Ég býst ekki við því að fólki þyki mikið í þetta blogg varið, en
blogg er það þó.
Ég hefi hugsað mér að fara að leggja mig fljótlega, enda komin
hánótt og ekki vil ég lenda í þeim skandal að sofa aftur yfir mig á
kvöldvakt.
Góðar stundir, lömbin mín
-Til hamingju með afmælið Baldvin Karel.

Anna Rut og ég á Landsmótinu
»
30.06.2006 13:18:04 / Steinunn
Mig langar að skrifa eitt blogg hér til heiðurs minni elskulegri
vinkonu, Birnu Björt.
Fyrir svo óralöngu síðan, eða þann 19. febrúar ákvað umrædd
stúlkukind að leggja land undir fót og stinga af hvorki meira mér
minna en til Brasilíu!  En núna fer óðar að styttast í að hún
komi heim og ég er við það að fara á límingunum af spenningi fyrir
því!!! Ekki nema þrjátíu dagar í það!! Það er ótrúlega ekkert
ofsalega mikið..
og hey
-35 dagar
í fokking þjóðhátíð!
-EKKI
NEMA sjötíu og sjö dagar í að ég verði fokking SAUTJÁN ÁRA!!
-fokk,
bara 30 dagar í að Birna Björt komi heim
-ekki
nema fokking fokk tveir tímar í brottför á Landsmót!
-níu og
hálfur tími í að ég fokking komi á Landsmót!
Enn gaman...  Fokk hvað ég hlakka mikið til að fara á
Landsmót..
Fokking fokk hvað ég sagði oft fokk í þessu bloggi, sjitt er ég
hörð...
Góða nótt :*
»
23.06.2006 00:25:52 / Steinunn
Svo óralangt í burtu er land sem
heitir Quartzyshung. Þar sest sólin aldrei í sæ, himininn er
alltaf blár, trén eru alltaf græn, súkkulaðihúðuðjarðarber vaxa
á öllum trjám, coke light rennur í fljótum, humar er sjálfsagður
morgunmatur, allir dagar eru laugardagar, fuglarnir syngja það
sem þér hentar best hverju sinni og rjómaísinn er megrandi og
rennur úr krönunum. Í þessu einstaka landi bjó prinsessa, óhemju
fögur álitum, indæl og gáfuð. Prinsessa þessi bar nafnið
Steinunn Anna. Hver einasti maður í landinu Quartzyshung, og
víðar, þráði hönd
prinsessunnar fögru og komu þeir í röðum til ótrúlega ríka föður
hennar daglega til að biðja hennar. Dag einn birtust vondir
víkingar og stálu óhemju fögru prinsessunni og fluttu hana til
Íslands og létu hana til í umsjá hjónakorna á selfossi sem hafði
orðið þeirra óhamingju aðnjótandi að eignast einungis einn son,
og þennan líka óskaplega vitleysing..
Úff ég nenni ekki meir.. kannski
framhald seinna, eða þið getið kannski bara getið í
eyðurnar..
Góða nótt :*
»
Síður: 1 2 3
|
|